Þjóðarátak í stærðfræði

Andvari · Verkefni

Þjóðarátak í stærðfræði

Lokið fyrir skólaárið 25/26

Andvari fjármagnaði sókn, innleiðingu og rannsókn á stærðfræðileiknum Evolytes sem var boðinn frítt fyrir öll börn í tveimur árgöngum skólaárið 2025/26.

Andvari fjármagnaði einnig „Stóru stærðfræðikeppnina“ sem fór fram í lok árs 2025. Hvassaleytisskóli stóð uppi sem sigurvegari keppninnar, en nemendur skólans svöruðu að meðaltali sem samsvarar heilum sex námsbókum í stærðfræði á fimm vikum. Grunnskólinn í Hofgarði hafnaði í öðru sæti og Grunnskólinn í Stykkishólmi í þriðja sæti.

Niðurstöður

Stóra stærðfræðikeppni Andvara og Evolytes fór fram á haustönn 2025. Samtals tóku 9.720 nemendur í 161 grunnskóla þátt yfir 36 daga. Nemendurnir sendu inn svör við samtals 1.768.542 dæmum. Daglegur meðalfjöldi svara í keppninni var 49.126.

Heilt yfir fyrir skólaárið 25/26 varð yfir 40% aukning meðal þeirra sem ná hæfni eða framúrskarandi hæfni. 6.860.609 spurningum var svarað af börnunum. 80% aðspurðra kennara merkja jákvæð áhrif af notkun Evolytes og 97% merkja jákvæð áhrif á vinnusemi nemenda í tímum.

Frekari niðurstöður má sjá á myndum neðar á síðunni.

Niðurstöður í myndum

Sjónrænar samantektir á niðurstöðum verkefnisins.

Þjóðarátak í stærðfræði – 1
Þjóðarátak í stærðfræði – 2
Þjóðarátak í stærðfræði – 3
Þjóðarátak í stærðfræði – 4
Þjóðarátak í stærðfræði – 5
Þjóðarátak í stærðfræði – 6