Andvari · Verkefnastaða

Verkefni Andvara

Yfirlit yfir verkefnin sem Andvari leiðir og styður — staða hvers verkefnis, samstarfsaðilar og mælanlegar niðurstöður.

Verkefni alls
7
Virk
6
Lokið
1
Í undirbúningi / bið
0
Hágæða námsgögn
namsgogn.is

Hágæða námsgögn

Andvari styður við þýðingu á opnu hágæða námsefni (openstax.org) sem er notað við kennslu í 60% bandarískra háskóla. Markmiðið er að færa unglingastigi grunnskóla, framhaldsskólum og jafnvel háskólum á Íslandi stóraukið aðgengi að hágæða námsefni á íslensku, sérstaklega í raungreinum. Einnig verður veittur aðgangur að kennslu- og prófa efni. Allt gefið.

Fyrstu bækur tilbúnar til notkunar og yfirlesturs
Verkefni AndvaraSkoða
Námsveita kennara
kennaralon.is

Námsveita kennara

Andvari greiddi fyrir smíði á námsveitu sem býr til miðlægan grunn þar sem hægt verður að senda inn námsefni sem höfundar vilja deila með skólakerfinu. Veitan er tilbúin. Nú þegar eru mörg hundruð hágæða kennslumyndbönd og efni framleidd af kennurum á veitunni. Veitan er fjármögnuð af Andvara, smíðuð af Apró, rekin af MMS og er fyrir kennara.

Tilbúið til notkunar
Verkefni AndvaraSkoða
Þjóðarátak í stærðfræði

Þjóðarátak í stærðfræði

Andvari fjármagnaði sókn, innleiðingu og rannsókn á stærðfræðileiknum Evolytes sem var boðinn frítt fyrir öll börn í tveimur árgöngum skólaárið 2025/26. Andvari fjármagnaði einnig „Stóru stærðfræðikeppnina“ sem fór fram í lok árs 2025. Hvassaleytisskóli stóð uppi sem sigurvegari keppninnar, en nemendur skólans svöruðu að meðaltali sem samsvarar heilum sex námsbókum í stærðfræði á fimm vikum. Grunnskólinn í Hofgarði hafnaði í öðru sæti og Grunnskólinn í Stykkishólmi í þriðja sæti.

Lokið fyrir skólaárið 25/26
Verkefni AndvaraSkoða
Málþroskasókn
hljom.mms.is

Málþroskasókn

Andvari styður MMS við að smíða vefapp, verkferla og gagnagrunn svo hægt verði að taka málþroskaprófið Hljóm2 (5 ára) með aðgengilegum hætti í gegnum vefsíðu. Mælingar munu fylgja barni og færa grunn að betri inngripsferlum. Haustið 2025 hófst innleiðingarverkefni með MMS, Akureyri, Mosfellsbæ og MRN. Málþroski er grunnur farsældar í skólagöngu.

Innleiðingarverkefni lokið. Tilbúið til frekari skölunar á landsvísu
Verkefni AndvaraSkoða
Graphogame lestrarleikur

Graphogame lestrarleikur

Andvari heldur áfram stuðningi við finnska lestrarleikinn Graphogame sem kom út í íslenskri útgáfu árið 2024 með stuðningi Billboard og Símans. Leikurinn hefur slegið í gegn í íslenskum grunnskólum og verið hlaðið niður yfir 60 þúsund sinnum. Félag læsisfræðinga staðfærði leikinn. Innleiðingarrannsókn átti sér stað í fyrsta bekk í Kópavogi á vorönn 2024 sem var leidd af Dr. Ulla Richardssen við Jyväskylä háskólann í Finnlandi. Raddir leiksins eru: „mamma“: Ilmur Kristjánsdóttir og „Pabbi“: Þorvaldur Davíð Kristjánsson.

Tilbúið
Verkefni AndvaraSkoða
Fjárfesting í börnum - mælaborð

Fjárfesting í börnum - mælaborð

Andvari greiðir leið fyrir auknum skilningi á því hvernig fjárfesting í börnum skilar skýrum ábata bæði hvað varðar velferð, árangur og kostnað ríkisins. Því miður er raunin sú í nútímastjórnsýslu að fjármagn til farsældar barna er ávallt litið á sem „opinber útgjöld“ í engu samhengi við mögulegan ávinning af fjárfestingu. Mælaborð, ábatamælingar og skilvirkari gagnasöfnun eru hér lykilstoðir.

Í vinnslu
Verkefni AndvaraSkoða
Þýðingarvél
babel.is

Þýðingarvél

Andvari hefur smíðað þýðingarvél sem notast við gervigreind og getur þýtt í rauntíma flest rafræn skjöl með þeim hætti að form heldur sér, jafnvel myndir. Hægt að þýða á flest tungumál. Hjálpar erlendum börnum að læra. Vélin er klár og verður öll notkun frjáls og frí fyrir menntakerfið. Allir með kennaranetfang geta skráð sig fyrir fríum aðgangi.

Tilbúið til notkunar
Verkefni AndvaraSkoða