
Andvari · Verkefni
Graphogame lestrarleikur
Andvari heldur áfram stuðningi við finnska lestrarleikinn Graphogame sem kom út í íslenskri útgáfu árið 2024 með stuðningi Billboard og Símans. Leikurinn hefur slegið í gegn í íslenskum grunnskólum og verið hlaðið niður yfir 60 þúsund sinnum. Félag læsisfræðinga staðfærði leikinn. Innleiðingarrannsókn átti sér stað í fyrsta bekk í Kópavogi á vorönn 2024 sem var leidd af Dr. Ulla Richardssen við Jyväskylä háskólann í Finnlandi. Raddir leiksins eru: „mamma“: Ilmur Kristjánsdóttir og „Pabbi“: Þorvaldur Davíð Kristjánsson.
Niðurstöður
Innleiðingarrannsókn var framkvæmd í fyrsta bekk í 9 grunnskólum í Kópavogi á vorönn 2024. 23 bekkir tóku stöðumat og svo fór fram hefðbundin lestrarkennsla næstu vikur þar sem helmingur barna fékk sem hluta af sinni lestrarþjálfun Graphogame stuðning. Síðan var aftur tekið stöðumat.
Fjórir þættir voru þjálfaðir og prófaðir:
- Að þekkja stafi og hljóð þeirra (143% betri árangur hjá GG hópi)
- Að þekkja orð (64% meiri aukning hjá GG hóp)
- Hljóðvitund (42% meiri aukning hjá GG hóp)
- Að skrifa orð (62% meiri aukning hjá GG hóp)
Niðurstöður í myndum
Sjónrænar samantektir á niðurstöðum verkefnisins.





